Flúði undan lögreglu

mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu veitti manni eftirför í morgun, en hann neitaði að stöðva bifreið sína. Eftir að tókst að stöðva bílinn kom í ljós að maðurinn var undir áhrifum fíkniefna, réttindalaus og á stolnum bíl.

Tekið var úr manninum blóðsýni og var hann svo vistaður í fangageymslu þar til skýrsla verður tekin af honum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert