Fluttur með þyrlu eftir vinnuslys

Þyrla Landhelgisgæslunnar á flugi.
Þyrla Landhelgisgæslunnar á flugi. mbl.is/Gúna

Vinnuslys varð í Landsveit í Rangárvallasýslu síðdegis í dag. Lögreglan á Hvolsvelli segir að einn maður hafi verið fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á slysadeild í Reykjavík.

Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum í Fossvogi hlaut maðurinn áverka á handlegg og er í aðgerð sem stendur. Verður hann fluttur á gjörgæslu eftir aðgerðina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert