Lýst eftir Ólafi Þór Ólafssyni

Ólafur Þór Ólafsson
Ólafur Þór Ólafsson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ólafi Þór Ólafssyni, 27 ára. Hann er klæddur í svarbláar víðar íþróttabuxur, gráa hettupeysu og opna sandala. Ólafur er 186 sentímetrar á hæð og um 100 kíló að þyngd.

Hann er með dökkt skegg, rakað hár og með hefti eftir aðgerð hægra megin á höfði. Hann er illa áttaður eftir höfuðmeiðsl. Síðast sást til hans á Grensásdeild, endurhæfingardeild Landspítala, um kl. 12:50.

Lögreglan hefur leitað eftir aðstoð Landsbjargar við leit og leitarflokkar frá þeim eru við leit á höfuðborgarsvæðinu. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Ólafs Þórs eru beðnir að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000.

Uppfært

Ólafur Þór fannst heill á húfi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert