Moldrok sést á Akureyri

Diskurinn við heimili Einars á Akureyri.
Diskurinn við heimili Einars á Akureyri. mbl.is/Einar Guðmann

„Ég er ekki viss um að þetta sé aska, líklegra er að þetta sé afleiðingar moldroksins norður af Vatnajökli,“ sagði Einar Guðmann, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, en diskur sem hann setti út á Akureyri var mjög óhreinn í morgun.

Einar segist oft setja út disk þegar jarðhræringar séu í gangi. Í morgun hafi diskurinn ekki lengur verið hvítur, en hann telur líklegast að ástæðan sé hið mikla moldrok sem hafi verið á Norðausturlandi.

Svo mikið sandrok er við eldstöðvarnar í Holuhrauni að lítið sést í eldgosið. Vindáttin er í norðvestur og því ekki ólíklegt að fínn foksandur hafi náð til Akureyrar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert