Nokkrar tilkynningar bárust til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt og í morgun um lausa hluti sem væru að fjúka, t.d. auglýsingaskilti á Granda og Skeifunni, girðingu frá byggingarsvæði, trampólín úr garði o.fl. Á Suðurnesjum fuku trampólín einnig, en þar hefur verið mjög hvasst í morgun.
Vindur fór upp í 32 m/sek á Stórhöfða í morgun og 25 m/sek á Reykjanesbraut. Mesta úrkoma á landinu í nótt var í Reykjavík. Spáð er mikilli úrkomu á Suðausturlandi í dag en það á að lægja suðvestanlands fyrir hádegi.