Umhverfis hnöttinn með Lego

Nafnarnir Kristján Eggertsson og Kristján Örn Kjartansson hjá KRADS arkitektum hafa undanfarin fjögur ár nýtt sér Lego-kubba við kennslu í arkitektúr og þróun verkefna í listaháskólum víðsvegar um heiminn. Í kjölfarið hófu þeir samstarf við Lego og þróuðu með þeim vöru sem er til þess gerð að auka skilning og áhuga fólks á arkitektúr almennt. 

Kristján Eggertsson og Kristján Örn Kjartansson hjá íslensk-dönsku arkitektastofunni KRADS, hafa síðan árið 2010 nýtt sér Lego-kubba við kennslu og þróun verkefna í listaháskólum víðsvegar um heiminn. Í byrjun ágúst kom á markað vara frá Lego, Lego Architecture Studio, í Evrópu sem byggist á hugmyndafræði vinnustofu KRADS um að vekja áhuga, virkja sköpunargáfuna og dýpka skilning fólks á arkitektúr almennt. Pakkinn inniheldur 1.200 hvíta Lego-kubba og er, ólíkt öðrum vörum frá Lego, án leiðbeininga. KRADS vann með Lego að þróun vörunnar og er teiknistofan hugmyndafræðilegur ritstjóri veglegrar bókar sem fylgir kubbunum og er hugsuð til þess að veita innblástur og innsýn í hönnunarferli arkitekta.

„Það hefur verið ákveðin tilhneiging hjá arkitektanemum síðustu ár að gera minna af „fýsískum“ líkönum og styðjast frekar við tölvugerð þrívíddarmódel í hönnunarferlinu. „Fýsíska“ líkanið er þó afar mikilvægt verkfæri og okkur langaði að setja saman vinnustofu fyrir arkitektanema þar sem eingöngu væri unnið með slík líkön. Við ákváðum að nýta okkur Lego-kubbinn í vinnustofunum þar sem hann er mjög demókratískur sem byggingarefni, þ.e.a.s. það geta allir byggt úr Lego, og fókusinn er því frekar á hugmyndirnar að baki líkönunum en hversu vel þau eru sett saman,“ útskýrir Kristján. Hugmyndin að vinnustofunni var að taka burt þessi hefðbundnu verkfæri sem arkitektanemendur notast yfirleitt við, tölvuna, pennann og svo framvegis, og leyfa þeim eingöngu að vinna í líkön.

„Það sem gerist með því er að það verður meira samtal milli nemendanna og kubbarnir ýta sjálfkrafa undir leik í hönnuninni, sem er mjög mikilvægur þáttur í ferlinu sjálfu,“ útskýrir Kristján Örn en þeir Kristján fóru af stað með áhugaverðar vinnustofur fyrir arkitektanema í Listaháskóla Íslands árið 2010. Upphaflega var vinnustofan aðallega hugsuð fyrir fyrsta árs nemendur, til þess að koma þeim fljótt í gang og kynna þeim grunnhugtök í faginu og ýta undir samtal nemenda.

„Vinnustofurnar eru oftast með mjög hratt tempó sem er að því leyti gott að samtal nemendanna verður að ganga upp, það er varla tími til þess að

vera annað en sammála. Að vissu leyti eru vinnustofurnar þjálfun í skipulagðri samvinnu og sú æfing er mjög góð fyrir nemendur,“ segir Kristján Örn.

Árið 2012 tók KRADS þátt í HönnunarMars og í stað þess að sýna eitthvert af hefðbundnum verkefnum arkitektastofunnar ákváðu nafnarnir að sýna vinnustofuna sem verkefni.

„Við vorum með innsetningu í Hafnarhúsinu. Þar komum við fyrir stórum stöpli í miðju rýmisins með fullt af Lego-kubbum og öllum sem sóttu sýninguna gafst kostur á að spreyta sig á byggingu,“ útskýrir Kristján Örn og þá bætir Kristján við að með sýningunni hafi þeir uppgötvað hversu góður miðill Lego-kubburinn sé til þess að tengja fólk og ræða arkitektúr. „Lego-kubbarnir eru eitthvað sem allir skilja og allir geta nýtt sér. Þó svo að fólk sé stundum, eins og á sýningunni, bara að leika sér þá hefur þetta jákvæð áhrif á skilning og umræðuna um arkitektúr almennt,“ segir Kristján.

Hollenski arkitektinn Winy Maas, sem hélt fyrirlestur á HönnuarMars sama ár, varð hrifinn af sýningunni og stakk í kjölfarið upp á því að KRADS kæmi með vinnustofuna til Delft í Hollandi þar sem hann stýrir stúdíói innan arkitektúrdeildar tækniháskólans TU-Delft.

„Hann stakk upp á því að við værum með hálfs árs námskeið þar sem eingöngu væri byggt úr Lego.“

Á fyrri helmingi námskeiðsins unnu nemendurnir alls 700 líkön af skýjakljúfum í skalanum einn á móti 1.000, með þeirri hugsjón að leiðarljósi að opna skýjakljúfinn og gera hann meiri hluta af sínu nánasta borgarumhverfi. „Þá voru valdir 16 skýjakljúfar og þeir stækkaðir upp í skalann einn á móti 100 og úr því urðu þriggja metra há Lego-líkön. Þessir 16 turnar fóru síðan á sýningu í Hong Kong og litlu turnarnir 700, í skalanum 1 á móti 1.000 voru sýndir á Feneyjatvíæringnum,“ segir Kristján Örn og bætir Kristján við að vinnan með meistaranemum hafi fært verkefnið á hærra plan.

Bæta borgarmenningu með Lego

Síðan verkefnið fór af stað hafa nafnarnir ferðast víða með vinnustofurnar, til að mynda til Danmerkur, Hollands og Finnlands, og vakið í leiðinni athygli hjá alþjóðlegum fjölmiðlum með skemmtilegri nálgun sinni á arkitektúr.

„Um miðjan ágúst á þessu ári var okkur boðið að koma til Georgetown í Penang í Malasíu. Þar eru starfandi samtök sem bera heitið #Better Cities. Þau hafa verið að ferðast um Malasíu og stuðla að kynningu á nýjum hugmyndum um borgarumhverfi og bættri borgarmenningu í Suðaustur-Asíu,“ segir Kristján.

Samtökin höfðu kynnt sér vinnustofur KRADS sem sýnir hve öfluglega hugmyndafræði verkefnisins hefur breiðst út um heiminn.

„Þeir buðu okkur því að koma og stýra tveggja daga vinnustofu með arkitektum og masterclass-nemendum í George Town í Penang í tengslum við árlega borgarmenningarhátíð,“ útskýrir Kristján og bæta þeir við að

þessi litli Lego-kúrs sem byrjaði í listaháskólanum á Íslandi hafi heldur betur gefið af sér.

„Hugmyndin var upphaflega að búa til vinnustofu fyrir arkitektanema sem við gætum ferðast með um heiminn. Það var aðeins minna að gera hjá okkur á stofunni árið 2009, eins og víða annars staðar þá í byggingargeiranum, og því upplagður tími til að skapa sér sín eigin verkefni og læra eitthvað nýtt um leið. Við bjuggumst þó ekki við að ná alla leið á hina hlið hnattarins með kubbana og að fá að taka þátt í að þróa nýja vöru fyrir Lego,“ bætir Kristján við að lokum.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert