Vara við hviðum undir Eyjafjöllum

Það verður hvasst undir Eyjafjöllum í dag.
Það verður hvasst undir Eyjafjöllum í dag. mbl.is/RAX

Reiknað er með vindhviðum allt að 30-40 m/s undir Eyjafjöllum, á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli fram undir hádegi, en lægir síðan. Með hvassri SA-áttinni má einnig gera ráð fyrir vaxandi sandfoki á Mývatns- og Möðrudalsöræfum og eins við Dettifoss. Veðrið á að ganga niður upp úr kl. 18 til 19.

Almannavarnir hafa lokað leiðum á hálendinu norðausturlands, norðan Dyngjufjalla. Einnig nokkrum leiðum upp úr Bárðardal og við Grænavatn. Vegurinn vestan við Dettifoss er einnig lokaður. Hægt er að sjá þær hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert