Vilja fá menn í stjórn í samræmi við hlutafjáreign

Reynir Traustason, ritstjóri DV, og Sigurður G. Guðjónsson lögmaður.
Reynir Traustason, ritstjóri DV, og Sigurður G. Guðjónsson lögmaður. mbl.is/Ómar

Þorsteinn Guðnason, hluthafi í DV, segir að krafa þeirra sem eiga meirihluta hlutafjár í DV sé að fá menn kjörna í stjórn í samræmi við hlutafjáreign.

Þorsteinn sendi frá sér yfirlýsingu í dag vegna deilna sem verið hafa um útgáfufélagið.

„Ég hef um nokkurt skeið setið undir ásökunum um að vera „óvinur undir rúmi“ ritstjóra DV og hyggja á fjandsamlega yfirtöku á blaðinu. Þessar ásakanir hafa verið settar fram af forsvarsmönnum blaðsins, þótt ég hafi fyrir þeirra orð lagt DV ehf. til umtalsverða fjármuni á undanförnum mánuðum og misserum til að halda rekstri þess gangandi.

Krafa okkar sem eigum meirihluta í DV ehf. er að fá fulltrúa kjörna í stjórn í samræmi við hlutafjáreign. Brölt Reynis Traustasonar undanfarið miðar að því að skapa sér stöðu, með afar ógeðfelldum aðferðum, til að núverandi stjórn sitji áfram óbreytt. Reynir og þrír aðrir stjórnarmenn eiga saman um 10% hlutafjár en við, sem eigum saman góðan meirihluta í félaginu, eigum einn fulltrúa. Tilraunir Reynis til að taka yfir stjórnina með þessu eru í óþökk eigenda og því fjandsamlegar.   

Í harðri umræðu síðustu daga hefur jafnframt verið gefið í skyn að eigendur meirihluta hlutafjár í DV vilji með einhverjum hætti skerða ritstjórnarlegt sjálfstæði blaðsins. Slíkt er fjarri sanni. Ég hef sem stjórnarformaður aldrei skipt mér af einstökum fréttum í blaðinu DV eða á vefnum dv.is.

Á hinn bóginn hef ég um skeið haft áhyggjur af því að tiltekin öfl hafi óeðlileg áhrif á ritstjórnarstefnu blaðsins. Orðrómur þess efnis hefur magnast upp á síðkastið og hefur nú leitt til þess að ásakanir hafa verið settar fram á opinberum vettvangi af Sigurði G. Guðjónssyni hrl. og Elliða Vignissyni bæjarstjóra í Vestmannaeyjum.

Ég tel nauðsynlegt að hreinsa blað og vef af öllum ásökunum um óeðlileg áhrif á ritstjórnarstefnu miðilsins sem hefur um áratugaskeið gefið sig út fyrir að vera frjáls og óháður. Ég mun því á framhaldsaðalfundi DV ehf. næstkomandi föstudag leggja fram tillögu um óháða úttekt á fjárreiðum og rekstri DV ehf. undanfarin ár.

Þetta er ekki síst gert þar sem erfiðlega hefur gengið fyrir hluthafa og stjórnarmenn í DV ehf. að fá sjálfsagðar upplýsingar úr rekstri fyrirtækisins. Einfaldar fyrirspurnir hafa legið mánuðum saman án þess að vera svarað af þar til bærum aðilum.

Þá verð ég einnig að geta þess, að í dag bárust mér upplýsingar um að fyrrverandi blaðamaður á DV hyggist setja sig í samband við Fjölmiðlanefnd til að skýra frá sínum þætti varðandi fréttaflutning af málefnum Vinnslustöðvarinnar.

Það er skylda mín sem ábyrgs stjórnarmanns og blaðinu fyrir bestu að sannleikurinn komi fram í þessu máli,“ segir Þorsteinn í yfirlýsingu sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert