Fór með höndina í vélsög

Landspítalinn.
Landspítalinn. Morgunblaðið/Eggert

Karlmaður slasaðist illa á hendi við heimahús í Hveragerði síðastliðinn fimmtudag. Maðurinn var að búta niður timbur þegar hann fór með höndina í vélsög sem hann notaðist við. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítala þar sem gert var að sárum hans.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á Selfossi. Þar segir einnig að í síðustu viku hafi tólf kærur borist lögreglunni á Selfossi vegna hegningarlagabrota. Í tveimur tilvikum var um heimilisofbeldi að ræða og í öðru þeirra vísaði lögreglustjóri karlmanni af heimili sínu og úrskurðaði hann í nálgunarbann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert