Fylgi Sjálfstæðisflokksins 28%

mbl.is/Hjörtur

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist 28% samkvæmt nýrri skoðanakönnun Capacent Gallup sem greint var frá í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. Mælist flokkurinn sem fyrr stærstur og hefur bætt við sig hálfu prósentustigi frá því í júlí. Næst kemur Samfylkingin með 19,3% fylgi og hefur það ekki mælst meira frá síðustu þingkosningum.

Björt framtíð er með 14,9% fylgi samkvæmt könnuninni og Vinstrihreyfingin - grænt framboð 12,3. Framsóknarflokkurinn mælist hins vegar með 11,8% og Píratar með tæplega 8%. Stuðningur við ríkisstjórnina mælist 42% sem er óbreytt frá síðustu könnun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert