Mikil útbreiðsla brennisteinstvíildis

Útbreiðsla brennisteinstvíildis (SO2) yfir Norðausturlandi í dag.
Útbreiðsla brennisteinstvíildis (SO2) yfir Norðausturlandi í dag. Mynd/Veðurstofa Íslands

Mynd Bandarísku geimferðastofnunarinnar, NASA, tekin frá gervitunglinu Auro með OMI-tæki, sýnir mikla útbreiðslu brennisteinstvíildis (SO2) yfir Norðausturlandi um hádegið í dag. Þá hafa vísindamenn veðurstofunnar mælt mjög hátt magn SO2 við gosstöðvarnar í Holuhrauni.

Bennisteintvíildi er litlaust en fólk finnur lykt af því og það getur valdið ertingu og hósta og hindrað öndun. Þess vegna eru vísindamenn okkar með gasmæla á sér þegar þeir eru við störf.

Magn SO2 við gosstöðvarnar í Holuhrauni er langt yfir hámörkum Vinnueftirlitsins. Því getur mikil hætta falist í því að nálgast svæðið og mikilvægt að þeir sem fara nærri gosstöðvunum séu með gasmæla og gasgrímur. Hefur 10 km radíus umhverfis gosstöðvarnar verið skilgreindur sem hættusvæði vegna þessarar vár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert