Íslandsforeldrar til aðstoðar

Fjölskylduhjálp Íslands.
Fjölskylduhjálp Íslands. mbl.is/Árni Sæberg

Fjölskylduhjálp Íslands mun hefjast handa nú í september við leit að Íslandsforeldrum. Er þetta nýtt átak sem miðar að því að auka framlög til Fjölskylduhjálparinnar sem nýtast munu til að auka hollustu í þeim mat sem keyptur er og úthlutað. Áhersla verður lögð á að kaupa fisk, hreint kjöt, lýsi, ferskt grænmeti og ávexti. Margt smátt gerir eitt stórt og segir Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar Íslands, að verið sé að miða við 500-1000 króna styrki mánaðarlega frá Íslandsforeldrunum.

Ásgerður Jóna segir ennfremur að féð sem safnast undir þessum formerkjum verði eingöngu nýtt í þessum tilgangi og fái Íslandsforeldrarnir nákvæmt yfirlit yfir það í hvað styrkir þeirra fóru og hver sé heildarfjöldi styrkveitenda verkefnisins. Er þessi háttur hafður á í stað þess að tengja hvert Íslandsforeldri við barn en það þykir ekki tilhlýðilegt í ljósi nálægðarinnar hér á landi.

Mikil ásókn er almennt í mataraðstoð en um 30.000 matargjafir voru veittar í fyrra. Aukning hefur þó verið milli ára og fleiri hópar bætast við. „Þetta er úr öllum hópum en mikið til ungt fólk, námsmenn, foreldrar sem eru nýbyrjaðir að búa, einstæðir foreldrar, öryrkjar og eldri borgarar og síðan útlendingar sem leita til okkar,“ segir Ásgerður Jóna og vonast til að átakið fari vel af stað og þannig njóti sem flestir góðs af.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert