Útivistartími barna breyttist í dag

Útivistartími barna og unglinga tók breytingum í dag, 1. september.
Útivistartími barna og unglinga tók breytingum í dag, 1. september. Rax / Ragnar Axelsson

Útivistartími barna og unglinga tók breytingum í dag, 1. september. Frá og með deginum í dag mega 12 ára börn og yngri vera úti til klukkan 20.00 og 13 til 16 ára unglingar mega vera úti til klukkan 22.00. Lögregla segir mikilvægt að fylgja því eftir að börn og unglingar fái nægan svefn.

Bregða má út af reglunum fyrir síðartalda hópinn þegar unglingar eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Aldur miðast við fæðingarár.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að útivistarreglurnar séu samkvæmt barnaverndarlögum. „Þeim er m.a. ætlað að tryggja nægan svefn en hann er börnum og unglingum nauðsynlegur. Svefnþörfin er einstaklingsbundin en þó má ætla að börn og unglingar á grunnskólaaldri þurfi 10 tíma svefn á nóttu.

Mikilvægt er að fylgja því eftir að börn og unglingar fái nægan svefn. Í því felst m.a. að ganga úr skugga um að þau séu ekki í tölvunni þegar þau eiga að vera komin í rúmið.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert