„Verið að grauta í stjórnkerfinu“

Flækjustig borgarkerfisins mun aukast og tugmilljóna kostnaður bætast við árlega, …
Flækjustig borgarkerfisins mun aukast og tugmilljóna kostnaður bætast við árlega, segir Júlíus. mbl.is/Árni Sæberg

„Nú er það sem sagt forgangsverkefni nýrrar borgarstjórnar sem kemur saman á þriðjudaginn að búa til nýtt ráð fyrir Pírata.“

Þetta segir Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, í Morgunblaðinu í dag, en á fundi borgarstjórnar á morgun verður formlega gengið frá stofnun nýs stjórnkerfis- og lýðræðisráðs Reykjavíkurborgar. Samkvæmt málefnasáttmála meirihlutaflokkanna fellur formennska í ráðinu í hlut borgarfulltrúa Pírata.

„Auðvitað er það óskiljanlegt að borgarfulltrúar meirihlutaflokkanna skuli telja það í lagi að grauta í stjórnkerfi borgarinnar í þeim tilgangi að fjölga valdastöðum svo allir í meirihlutanum fái sitt,“ segir Júlíus Vífill ennfremur.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert