Ekki á móti stofnun hersveitanna

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra.
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra. mbl.is/Golli

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra segir Ísland ekki leggjast gegn því að sett verði á laggirnar sérstakar viðbragðshersveitir á vegum Atlantshafsbandalagsins (NATO) til þess að bregðast við vegna stöðu mála í Austur-Evrópu gerist þess þörf. 

Haft var eftir Gunnari Braga í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins að Ísland hefði ekki lagst gegn þróun NATO til þessa eða breytingum á bandalaginu og það yrði ekki raunin að þessu sinni heldur. Stofnun viðbragðshersveitanna væri að hans mati eðlileg öryggisráðstöfun.

Leiðtogafundur NATO hefst á morgun í Wales og munu Gunnar Bragi og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sitja hann fyrir Íslands hönd. Þar stendur meðal annars til að fá samþykki fyrir stofnun hersveitanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert