Hlýjast á austanverðu landinu

Veðurstofan gerir ráð fyrir suðvestlægri eða breytilegri átt á landinu næsta sólarhringinn, 3-10 metrum á sekúndu. Hvassast um landið austanvert.

Víða verður rigning eða skúrir en rofar til austanlands með morgninum. Spáð er hægviðri annað kvöld. Stöku skúrir verða sunnanlands en annars þurrt. Hiti verður á bilinu 7-16 stig, hlýjast austanlands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert