Félag stjórnenda leikskóla og Samband íslenskra sveitarfélaga skrifuðu undir kjarasamning í húsakynnum Ríkissáttasemjara um klukkan þrjú í dag. Nýr kjarasamningur gildir frá 1. maí 2014 og er til þrettán mánaða.
Innihald samningsins verður kynnt félagsmönnum FSL á næstu dögum en sérstakir kynningafundir eru áætlaðir dagana 8. til 11. september. Atkvæðagreiðsla um samninginn fer fram í kjölfarið en henni á að vera lokið eigi síðar en 15. september.