Ríkið selur á Bland.is

Gert hefur verið tímamótasamkomulag við söluvefinn Bland.is um að taka að sér sölu lausamuna fyrir stofnanir ríkisins. Tilgangur þessa tilraunaverkefnis er að auðvelda stofnunum sölu á lausamunum sínum, s.s. húsbúnaði, tölvubúnaði, skrifstofutækum og öðrum seljanlegum búnaði eða munum.

Samkomulagið við Bland.is var gert til reynslu og gildir til eins árs eða út maí 2015.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert