Hafa ítrekað orðið að rýma svæðið

Gosið í Holuhrauni.
Gosið í Holuhrauni. mynd/Jarðvísindastofnun HÍ

Gosvirkni í Holuhrauni er svipuð og undanfarna daga. Hraun rennur til austurs af svipuðum krafti og áður. Það hægir ekki á hrauninu en það lengist í farvegi Jökulsár á Fjöllum. Áin flæmist til austurs undan hrauninu. 

Þetta kom fram á fundi vísindamannaráðs Almannavarna í morgun. Fundinn sitja vísindamenn frá Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskólans ásamt fulltrúum frá Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra.

Fundinn sátu jafnframt Sóttvarnarlæknir og fulltrúi Umhverfisstofnunar.

Gosvirkni er svipuð og undanfarna daga. Hraun rennur til austurs af svipuðum krafti og áður. Það hægir ekki á hrauninu en það lengist í farvegi Jökulsár á Fjöllum. Áin flæmist til austurs undan hrauninu. Ekki er sprengivirkni þar sem hraunið rennur í ána en gufubólstrar stíga til himins.

Vísindamannaráðið segir að styrkur styrkur brennisteinsdíoxíðs (SO2) sé sambærilegur við það sem mældist á vöktunarstöðvum í Reyðarfirði á laugardag. Hann geti valdið óþægindum hjá fólki með undirliggjandi öndunarfæravandamál. Aðrir ættu ekki að finna fyrir teljandi áhrifum.

Þá er unnið að því að bæta mælanet Umhverfisstofnunar til þess að mæla magn brennisteinsdíoxíðs (SO2) á fleiri stöðum í byggð. Gögn frá nýuppsettum SO2-mæli á Egilsstöðum verða aðgengilega seinna í dag. Í gær, 8. september, mældist ekki mengun frá gosinu á Reyðarfirði og búist er við að svo verði einnig í dag. Tilmæli frá Sóttvarnalækni og Umhverfisstofnun má finna á heimasíðum stofnananna.

Þá kemur fram, að mkið gasstreymi sé í og í kring um eldstöðina. Bráð lífshætta stafi af gasinu og því sé ekki óhætt að nálgast svæðið án gasmæla og gasgríma. Vísindamenn hafi þurft að rýma svæðið endurtekið síðasta sólarhringinn vegna þess að gasstyrkur fór langt yfir hættumörk þegar vindátt breyttist skyndilega. Við gosstöðvarnar megi búast við sífelldum staðbundnum breytingum á vindátt, vegna hitauppstreymis, sem geri aðstæður þar mjög hættulegar.

Um 150 skjálftar hafa mælst frá miðnætti. Í norðurhluta Bárðarbunguöskjunnar voru tveir þeir stærstu, 3,8 og 5,2.  Lítill en stöðugur órói hefur mælst síðustu daga.

GPS mælingar sýna óverulegar jarðskorpuhreyfingar þannig að kvikustreymi inn í ganginn virðist haldast svipað og útstreymi í gosinu í Holuhrauni.

 Fjórir möguleikar eru áfram taldir líklegastir um framvindu:

  • Að innflæði kviku stöðvist, skjálftahrinan fjari út og kvika brjótist ekki til yfirborðs á fleiri stöðum.
  • Gangurinn nái til yfirborðs á fleiri stöðum utan jökuls. Ekki er hægt að útiloka gos með hraunflæði og/eða sprengivirkni.
  • Gangurinn nái til yfirborðs undir jökli aftur og leiði jafnvel til umtalsverðs eldgoss. Gosið myndi leiða til jökulhlaups í Jökulsá á Fjöllum og e.t.v. einnig sprengigoss með öskufalli.
  • Gos í Bárðarbungu. Gosið gæti leitt til jökulhlaups og e.t.v. einnig sprengigoss með öskufalli. Mestar líkur eru á að hlaup kæmi niður Jökulsá á Fjöllum, en ekki er hægt að útiloka aðrar hlaupaleiðir: Skjálfandafljót, Kaldakvísl, Skaftárkatla og Grímsvötn.

Ekki er hægt að útiloka aðrar sviðsmyndir.

Litakóði fyrir flug er appelsínugulur fyrir Bárðarbungu og gulur fyrir Öskju.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert