Nýr útsýnispallur við Ófærufoss

Nýr útsýnispallur við Ófærufoss í Eldgjá hefur verið tekinn í notkun. Framkvæmdasjóður ferðamannastaða fjármagnaði verkið til helminga við Vatnajökulsþjóðgarð. Megintilgangur útsýnispallsins er að vernda viðkvæmt umhverfi Ófærufoss fyrir ágangi, auka öryggi gesta og jafnframt að gefa þeim möguleika á aukinni nánd við fossinn.

Þetta kemur fram á facebooksíðu Vatnajökulsþjóðgarðs.

Fram kemur að pallurinn hafi verið hannaður inn í fosshvamminn af Birgi Teitssyni, Arkís arkitektum, í samvinnu við Landform landslagsarkitekta og verkfræðistofuna Eflu. Valmundur Guðmundsson, Eystra-Hrauni ehf. í Landbroti, sá um smíði pallsins ásamt Vélsmiðjunni ehf. í Hafnarfirði en Vélaleiga Ingólfs ehf. boraði fyrir og steypti undirstöður.

Þá segir að þar sem Eldgjá sé ófær ökutækjum hafi þjóðgarðurinn þurft að fá aðstoð þyrlna við efnisflutninga inn að Ófærufossi. Að því verki komu Landhelgisgæslan og Vesturflug ehf.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert