Kraftur í Baugi

Töluverður kraftur er í Baugi, miðgígnum í gossprungunni í Holuhrauni, segir Ármann Höskuldsson, eldfjallafræðingur hjá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, en hann er staddur á gosstöðvunum. Hann segir að hraunið sé að breiða úr sér en fari hægar í átt að Jökulsá á Fjöllum og breiði þess í stað meira úr sér á söndunum.

„Það er ekki eins hraðskreitt og það var og greinilegt að það hefur losað um spennuna þegar rennslið var sem mest undanfarna daga,“ segir Ármann.

Spár gefa til kynna háan styrk brennisteinsgasa frá eldgosinu. Búast má við að svæðið frá norðanverðum Austfjörðum norður til Vopnafjarðar verði fyrir mestum áhrifum. Stærra svæði er ekki útilokað, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands.

Að sögn Ármanns verður hraunið að byggja upp ákveðna þykkt áður en það streymir hratt yfir.

Líkt og fram hefur komið hefur hraunelfurin runnið á miklum hraða í Jökulsá á Fjöllum og um leið losnað um spennu. Því sé eðlilegt að það hægi á rennslinu nú á meðan hraunkantarnir byggjast upp á nýjan leik og þykknar fyrir innan kantana.  

Að lokum brestur það, segir Ármann, og hraunið streymir hratt fram líkt og það gerði til að mynda um helgina og fyrri hluta vikunnar þegar það fór fram um einn km til tvo kílómetra á dag. 

Samkvæmt upplýsingum frá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands eru um 2 km að Svartá en hraunið er tæpir 17 km á lengd frá Suðra að hraunjaðri í norðaustri.

Á fundi vísindamannaráðs í morgun kom eftirfarandi fram:

Ekki dregur úr gosinu í Holuhrauni. Samkvæmt athugunum á vettvangi er gosvirkni svipuð og undanfarna daga. Hraun rennur til austurs, lítill hluti þess breiðir úr sér til norðurs en megintungan rennur áfram í farveg Jökulsár á Fjöllum og áin flæmist til austurs undan hrauninu. Ekki er sprengivirkni þar sem hraunið rennur í ána en gufubólstrar stíga til himins.

Loftgæði í byggð:

Spár gefa til kynna að hár styrkur brennisteinsgasa gæti orðið á norðanverðum Austfjörðum, Fljótsdal, Héraði, Jökuldal og Vopnafirði. Svæði með háum styrk gæti orðið stærra. Ef fólk finnur fyrir óþægindum er mælt með að halda sig innandyra, loka gluggum og slökkva á loftræstingu. Hægt er að fylgjast með mælingum á loftgæðum á síðunni loftgæði.is. Veðurstofan birtir viðvaranir eftir því sem aðstæður breytast á vedur.is.

Tilmæli og leiðbeiningar frá Sóttvarnalækni og Umhverfisstofnun má finna á heimasíðum stofnananna.

Loftgæði á gossvæðinu:

Mikið gasstreymi er í og í kringum eldstöðina. Bráð lífshætta stafar af gasinu og ekki er óhætt að nálgast svæðið án gasmæla og gasgríma. Við gosstöðvarnar má búast við sífelldum staðbundnum breytingum á vindátt, vegna hitauppstreymis, sem gera aðstæður þar mjög hættulegar.

Jarðskjálftavirkni í öskju Bárðarbungu breytist lítið frá degi til dags. Skjálftarnir dreifast einkum um norður- og suðausturhuta öskjumisgengisins. Skjálfti af stærðinni 5,3 varð klukkan 00:07. Dregið hefur nokkuð úr skjálftum við norðurenda kvikugangsins. Rúmlega 30 skjálftar hafa mælst frá miðnætti. Órói virðist vera svipaður og undanfarna daga.

GPS-mælingar sýna óverulegar jarðskorpuhreyfingar þannig að kvikustreymi inn í ganginn virðist haldast svipað og útstreymi í gosinu í Holuhrauni. Þegar litið er yfir tímabilið frá því gos hófst má hins vegar greina hreyfingar í átt að Bárðarbungu sem benda til áframhaldandi sigs í öskjunni.

Þrír möguleikar eru taldir áfram líklegastir um framvindu:

  • Öskjusig í Bárðarbungu hættir áður en það verður mikið og gosið í Holuhrauni fjarar út.
  • Mikið öskjusig í Bárðarbungu. Gos í Holuhrauni verður langvinnt eða vex. Mögulegt að sprungan lengist til suðurs inn undir Dyngjujökul og valdi jökulhlaupum og gjóskufalli. Einnig er mögulegt að sprungur opnist annars staðar undir jöklinum.
  • Mikið öskjusig í Bárðarbungu og gos í öskjubroti. Slíkt gos gæti brætt mikinn ís og valdið verulegu jökulhlaupi.

Ekki er hægt að útiloka aðrar sviðsmyndir.

Frá Veðurstofu Íslands:

Litakóði fyrir flug er áfram appelsínugulur fyrir Bárðarbungu en kóða fyrir Öskju hefur verið breytt í grænt.

Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur virðir fyrir sér logandi hraunið falla í …
Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur virðir fyrir sér logandi hraunið falla í Jökulsá á Fjöllum. RAX
Yfirlitskort skv. GPS mælingum Ármanns Höskuldssonar og annarra vísindamanna af …
Yfirlitskort skv. GPS mælingum Ármanns Höskuldssonar og annarra vísindamanna af vettvangi í morgun. Nú eru um 2 km að Svartá en hraunið tæpir 17 km á lengd frá Suðra að hraunjaðri í norðaustri. Af Facebooksíðu Jarðvísindastofnunar
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert