Kveikt í rusli við kirkjuna

Tilkynnt var um eld fyrir aftan Árbæjarkirkju um skömmu fyrir klukkan níu í kvöld og var dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins sendur á staðinn.

Í ljós kom að kveikt hafði verið í rusli fyrir aftan krikjuna og var snarlega slökkt í því. Ekki er vitað hverjir komu eldinum af stað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert