Mengun hefur einnig áhrif á dýr

Brennisteinsdíoxíð veldur m.a. ertingu í öndunarfærum og augum.
Brennisteinsdíoxíð veldur m.a. ertingu í öndunarfærum og augum. mbl.is/Styrmir Kári

Matvælastofnun (MAST) vill vekja athygli dýraeigenda á að loftmengun frá eldgosinu í Holuhrauni hefur sambærileg áhrif á dýr og fólk. Það er því ástæða til að verja dýrin gegn áhrifum hennar svo sem kostur er.

Þetta kemur fram á vef MAST.

„Brennisteinsdíoxíð veldur m.a. ertingu í öndunarfærum og augum. Áhrifin eru meiri því lengur sem dýrin eru útsett fyrir menguninni. Þegar styrkur brennisteinsdíoxíðs í andrúmslofti er hár þarf að reyna að draga sem best verður á kosið úr álagi á öndunarfæri. Þetta er rétt að hafa í huga við smölun þá daga sem mengunin er mikil, því meðal þess sem þarf að varast eru mikil hlaup og streita.

Engin opinber viðmiðunarmörk eru til fyrir styrk brennisteinsdíoxíðs í umhverfi dýra og rannsóknir eru takmarkaðar. Matvælastofnun mælir með að miðað sé við sömu mörk og gilda fyrir fólk. Heilsuverndarmörk fyrir eina klukkustund eru 350µg/m3 en mörkin fyrir einn sólarhring eru 125µg/m3, skv. reglugerð nr. 251/2002,“ segir í frétt MAST.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert