Hollensku hjónin Jan og Elsje Luijk slösuðust í alvarlegu mótorhjólaslysi á Snæfellsnesi í ágúst.
Þau segja sögu sína í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins en þau eru full þakklætis til allra sem komu að slysinu.
„Allt í einu lægði vindinn og það varð logn. Ég varð að hafa mig allan við til að rétta hjólið af – annars hefðum við dottið. Þegar ég var að reyna að rétta hjólið af og allt virtist vera fallið í ljúfa löð kom ofsalega öflug vindhviða, helmingi öflugri en það sem við höfðum verið að keyra í og við áttum aldrei möguleika. Við keyrðum út af.“
Söguna alla má lesa í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins.