Ætla að búa til eigin reyk

Goðsögnin Ali Campbell, röddin sem syngur um „Rautt, rautt vín“ og „I got you Babe“ og að hann „geti ekki gert að því að hann sé að verða ástfanginn af þér“ er á hinum enda línunnar. Söngvari hljómsveitarinnar UB40 til áratuga elskar reggí og segir tónlistina gefa heiminum ást en UB40 er meðal allra söluhæstu hljómsveita popptónlistarsögunnar, með yfir 70 milljónir seldra platna og flestir geta sungið með lögum þeirra frá 9. og 10. áratugnum.

Ali Campbell er á leiðinni til landsins með gömlu félögunum sínum úr UB40, þeim Astro Wilson og Mickey Virtue, en í Hörpu um næstu helgi, 19. september, munu þeir flytja öll þekktustu lög sveitinnar frá 8. og 9. áratugnum og spila 2-3 lög af plötu sinni sem kemur út í október.

„Ég vonast til að sjá eldgosið þegar við komum. Síðast þegar gaus á Íslandi, í Eyjafjallajökli, man ég hvað ég var ótrúlega heppinn og ég vona að við verðum það líka núna hvað flugsamgöngur varðar. Ég nefnilega flaug til Suður-Ameríku og vélin sem ég tók var síðasta vélin sem fékk að fara áður en flugbann var sett á. Þegar ég snéri til baka nokkrum dögum seinna fór ég í fyrstu flugvélina sem fékk að fara í loftið eftir að flugsamgöngur höfðu legið niðri,“ segir Ali Campbell en hann segist vera mikill áhugamaður um eldgos, jarðskjálfta og slíkt þótt hann geri sér grein fyrir dauðans alvöru.

„Ég veit ekki margt um Ísland get ég sagt þér, ég þekki Björk, en ég er í það minnsta með á hreinu að þið búið á sprelllifandi stórri eldstöð. Og í mínum huga eru Íslendingar því afar, afar hugrakkir!“

Vilja „bjarga arfleifðinni“

Það var núna í janúar sem aðalsöngvarar UB40 til áratuga, Ali Campbell og Astro Wilson ásamt Mickey Virtue, tilkynntu að þeir myndu koma saman til að taka upp nýja plötu og hefja tónleikaferð um heiminn.

Ali Campbell stofnaði hljómsveitina UB40 árið 1978 en árið 2008 kom það mörgum í opna skjöldu er hann yfirgaf hljómsveitina. Sjálfur segir hann það hafa verið vegna mikillar óánægju með stefnumótun og rekstur hljómsveitarinnar á þeim tíma en úr varð að Virtue fylgdi honum þá einnig eftir. Astro varð áfram eftir í hljómsveitinni en hætti í fyrra vegna sömu óánægju og þeir hafa nú myndað hljómsveit – meðal annars til að „bjarga arfleifð UB40“ eins og hann segir sjálfur.

„Ég hætti í gömlu, góðu UB40 fyrir 6 árum. Á svipuðum tíma hætti Mickey Virtue hljómborðsleikari einnig. Mig langaði alls ekki til að yfirgefa eigin hljómsveit, því ég stofnaði UB40, heldur neyddist ég til þess og það sama gilti um Mickey. Á síðasta ári gekk Astro svo til liðs við okkur. Svo að í sex ár höfum við þrír, kjarni sveitarinnar, ekki spilað saman.“

Bróðir Ali Campbell, Duncan Campbell, stökk inn í söngvarahlutverkið í staðinn og Ali Campbell fer ekki leynt með hversu ósáttur hann er með þróun mála á þeim bæ, hvorki í þessu viðtali né öðrum úti í heimi sem birst hafa við hann.

„Sveitin sem hefur verið starfandi núna upp á síðkastið í nafni UB40 fór út í eitthvert bull. Hún gaf út hljómplötu með poppskotinni þjóðlagatónlist eða kántrítónlist. Þá sá Astro hvað var að gerast og kom til mín því ef það er eitthvað sem UB40 hefur aldrei verið þá er það kántrí – hún er reggí. Ég stofnaði hljómsveitina til að breiða reggí út um heiminn og það var æðsta markmið okkar hljómsveitarmeðlimanna og það er ennþá minn æðsti tilgangur með því að vera í tónlist.“

Frá árinu 2008 hefur Ali Campbell sinnt sólóverkefnum og þrjár platna hans hafa endað á topp tuttugu listanum í Englandi en ný plata sem er væntanleg í október er með tónlist þeirra allra þriggja.

„Því miður hef ég undanfarin ár þurft að hlusta á bróður minn, Duncan, spila verr og verr og gamla sveitin mín hefur fengið færri og færri gigg. Duncan er þjóðlagasöngvari og góður sem slíkur en í hans meðförum hef ég hlustað á hann gjöreyðileggja lögin mín undanfarin fimm ár. Í fimm ár – hugsaðu þér. Og hann hefur skaðað arfleifð UB40 mjög mikið og var kominn langt á leið með að skaða þá ímynd sem hljómsveitin á að standa fyrir.“

Ali Campbell segir að þeir félagar séu núna að spila nafn UB40 aftur til sín. „Það versta er að þeir blekkja fólk. Þeir auglýsa tónleika og nota til þessa gamlar myndir af mér og Astro og Mickey en svo kemur fólk á tónleikana og þetta er engan veginn UB40 eða hennar tónlist. Ég læt því fólk vel vita þegar við auglýsum tónleikana okkar sem við höfum verið að halda allt þetta ár að fólk sé að koma að sjá Ali Campbell og UB40 svo fólk veit að þetta er alvöru sveitin. En ég veit að margir hafa haldið sig vera að fara á tónleika með okkur upprunalegu sveitinni og hlusta á röddina sem er að baki UB40 og verður fyrir vonbrigðum.

Við spilum á stórum tónleikum um allan heim. Við erum nýkomnir frá Hollandi, Einthoven, og við erum að hitta gömlu aðdáendurnar okkar en líka nýja en því miður er gamla hljómsveitin lítil kráarhljómsveit í dag. Ef fólk vill sjá upprunalegu söngvarana, hlusta á upprunalegu tónlistina og alvöru reggí á það að koma og sjá okkur. Ef fólk vill sjá hina hljómsveitina – þá gerir fólk það bara.“

Mikið hefur verið fjallað um endurkomu Ali Campbell og félaga hans í fjölmiðlum ytra en á tónleikum sem þeir hafa haldið um allan heim einbeita þeir sér að því að „færa UB40 aftur til fólksins“ – eins og Campbell orðar það sjálfur. „Við erum að spila alla slagarana okkar frá 9. og 10. áratugnum en á þeim tíma áttum við um 40 lög sem fóru í efstu sæti vinsældalista um allan heim. Svo detta inn 2-3 lög af nýju plötunni okkar. Þetta verður frábært – ég vona að þið þekkið tónlistina okkar,“ segir Ali Campbell og blaðamaður ræskir sig og syngur nokkur helstu UB40-stefin til að færa sönnur á þau orð að svo sé.

„Við höfum verið að ferðast mjög vítt og breitt, við erum nýkomnir frá Hollandi og vorum í Afríku um daginn. Það hefur komið okkur ánægjulega á óvart að sjá að tónlist okkar hefur lifað milli kynslóða og við vorum mjög hissa á að sjá unglinga syngja lögin okkar og kunna textana, jafnvel lög sem eru ekki þau allra frægustu. Það er alveg frábær tilhugsun að Íslendingar þekki lögin og kunni að meta þau.“

Allir skilja boðskapinn

Það eru ekki margir reggítónlistarmenn í heiminum sem hafa náð að gera þessa gerð tónlistar jafn vinsæla og UB40, má þar helst nefna nöfn eins og Bob Marley.

„Það er frábær tilfinning að vera með gömlu félögunum í að spila og búa til tónlist sem við kunnum svo vel. Það er mikið hlegið og góð dýnamík.“

Hvað er það við reggí sem laðar fólk að?

„Fyrir mína parta er þetta kynþokkafyllsta tónlist í heimi. Afdráttarlaust. Hraði hennar er sá sami og hjartsláttur. Ég held að reggí hafi síðustu árin haft meiri áhrif á nútímatónlist en hún hefur nokkurn tímann haft. Það er einhver taktur í reggí sem sameinar fólk. Enda snýst reggí, lagatextarnir og allur boðskapur tónlistarinnar, um að færa fólk saman í nafni frelsis. Að því leyti er tónlistin mjög byltingarkennd.“

Hver er lykillinn að velgengni UB40?

„Þegar fólk spyr okkur hver sé lykillinn að velgengni þá svara ég því að það sé einmitt ekkert leyndarmál. Lykillinn er sá að við spilum gott reggí og fólk um allan heim hlustar á reggí og það er eftirspurn eftir gæðareggí. Það skiptir engu máli hvaða tungumál fólk talar – allir skilja þann boðskap sem tónlistin hefur fram að færa.“

UB40 mun dvelja í tvær nætur á landinu en Ali Campbel segir það regluna, sérstaklega þegar þeir ferðist til nýrra staða, að hafa að minnsta kosti einn dag þar sem þeir geti skoðað sig um. Og hvað ætla þeir að gera? Það er greinilega allt á hreinu:

„Við hreinlega verðum að leigja þyrlu til að geta séð gosið ef það er hægt. Og við ætlum að skemmta okkur, ég vona að Íslendingar séu tilbúnir til að skemmta sér með okkur. Við erum mjög opnir og það er alltaf gaman að eignast nýja vini, við höfum hugsað okkur að kíkja út á lífið. Við vonum bara að gosmökkur stoppi okkur ekki. Við ætlum að koma og búa til okkar eigin reyk!“

Röddin á bak við allt

Það sem er einkennandi fyrir þekktustu slagara UB40 er rödd Alistair Campbell, eða Ali eins og hann er jafnan nefndur að fyrra nafni.

Ali Campbell hefur alltaf verið vinsælt umfjöllunarefni bresku blaðanna enda yfirleitt líf og fjör í kringum hann og hans fjölskyldulíf.

Ali Campbell er fæddur árið 1959 í Birmingham. Faðir hans var þekktur breskur þjóðlagasöngvari, Ian Campbell.

Ali Campbell á átta börn, þar af tvö með núverandi eiginkonu sinni.

Auk þess að sinna UB40 og eigin sólóferli og gefa út þrjár plötur, hefur Ali Campbell sinnt öðrum verkefnum og var til dæmis í þriggja manna dómnefnd New Zealand´s Got Talent ásamt Jason Kerrison og Rachel Hunter.

Ali Campbell hefur hlotið fjölmargar viðurkenningar og verðlaun fyrir tónlist sína og meðal annars verið tilnefndur til Grammy-verðlaunanna.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert