Lögreglan á Suðurnesjum leitar að Agnesi Helgu Sigurpálsdóttur, 15 ára, frá Reykjanesbæ. Síðast er vitað um ferðir Agnesar um klukkan 15 í gærdag en þá sást til hennar í Hafnarfirði.
Agnes er 160 cm á hæð með ljóst axlasítt hár. Hún var klædd í svartar leggings, ljósgráa víða joggingpeysu og svarta og bleika Adidas-skó.
Þeir sem verða varir við ferðir Agnesar eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við lögregluna á Suðurnesjum í síma 420-1800.