Aðhefst ekki vegna símahlustana

Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari.
Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari. mbl.is/Eggert

Ríkissaksóknari segir að ekki hafi verið grundvöllur fyrir sérstakri rannsókn eða athugun vegna ábendinga sem bárust frá fyrrverandi starfsmönnum embættis sérstaks saksóknara um misfellur við meðferð rannsóknargagna hjá embættinu vegna símahlustana. 

Þetta kemur fram í svari sem hefur verið birt á vef ríkissaksóknara í tengslum við ásakanir sem Jón Óttar Ólafsson, fyrrverandi starfsmaður sérstaks saksóknara, lét falla í viðtali í Fréttablaðinu um helgina. Þar sagði hann m.a. að embættið hefði hlerað með ólög­mæt­um hætti sím­töl verj­enda við skjól­stæðinga sína og spilað þau í húsa­kynn­um þess þannig að all­ir viðstadd­ir hafi getað heyrt þau.

Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari segir í svari á vef embættisins, að ríkissaksóknari hafi farið yfir gögn sem aflað hafi verið við rannsókn ríkissaksóknara sem fór fram á árinu 2012 vegna ætlaðra brota tveggja fyrrverandi starfsmanna embættis sérstaks saksóknara. Þeir höfðu réttarstöðu sakbornings vegna meintra brota gegn almennum hegningarlaga.

„Meðal þeirra gagna er greinargerð umræddra sakborninga, dags. 24. ágúst 2012. Ríkissaksóknari staðfestir að í þeirri greinargerð koma fram ábendingar um misfellur við meðferð rannsóknargagna af hálfu starfsmanna við embætti sérstaks saksóknara. Þær ábendingar samrýmast ekki að öllu leyti því sem fram kemur í viðtali við annan af sakborningunum, Jón Óttar Ólafsson, í Fréttablaðinu 13. september sl. og aðrir fjölmiðlar hafa fjallað um á síðustu dögum. Við rannsókn og meðferð málsins hjá ríkissaksóknara á árinu 2012 og í ársbyrjun 2013 var farið yfir umræddar ábendingar, meðal annars við skýrslutökur af öðrum starfsmönnum embættis sérstaks saksóknara. Niðurstaða ríkissaksóknara á þeim tíma var að ekki væri grundvöllur fyrir sérstakri rannsókn eða athugun vegna ábendinganna,“ segir í svarinu.

„Núverandi ríkissaksóknari, sem skipaður var í starfið 4. apríl 2011, hefur leitast við að koma á eftirliti með hlustunum lögreglustjóra og embættis sérstaks saksóknara og meðal annars krafið embættin um gögn og upplýsingar því tengdu. Þau svör sem borist hafa frá embætti sérstaks saksóknara hafa ekki gefið tilefni til að ætla að þar sé ekki farið eftir ákvæðum laga um meðferð sakamála.

Ríkissaksóknari áréttar að hann telur afar mikilvægt að lögregla og embætti sérstaks saksóknara gæti ítrustu varúðar og vandvirkni við beitingu þvingunarúrræða á borð við símahlustanir og að farið sé að öllum reglum sem um slík úrræði gilda, þar með talið varðveislu og eyðingu gagna þegar það á við,“ segir ennfremur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert