Bar sigur úr býtum gegn Shirov

Einar Hjalti Jensson
Einar Hjalti Jensson mbl.is/Ómar Óskarsson

Einar Hjalti Jensson í skákfélaginu Hugin gerði sér lítið fyrir í dag á Evrópumóti taflfélaga og vann lettneska stórmeistarann Alexei Shirov. Shirov er með 2701 FIDE-stig og var í maí á þessu ári í 41. sæti heimslistans. 

Einar Hjalti er með 2349 FIDE-stig og því ljóst að um glæsilega frammistöðu er að ræða. Huginn tapaði viðureigninni 2-4. 

Sjá frétt skák.is 

Hér má sjá viðureign Einars Hjalta og Shirovs. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert