Sautján ára á 144 km hraða

Sjö ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Sá sem hraðast ók mældist á 144 km hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Þar var á ferðinni sautján ára piltur, sem játaði brot sitt greiðlega.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert