Styrkur SO2 hratt upp á Kópaskeri

Kópasker.
Kópasker. www.mats.is

Styrkur brennisteinstvíildis, SO2, fer nú hratt upp á Kópaskeri og nágrenni. Öllum á svæðinu er ráðlagt að halda sig innandyra, loka gluggum og hækka í ofnum. Engir mælar eru á svæðinu en íbúar hafa orðið varir við mengunina.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra vill minna á töflu um möguleg heilsuáhrif og rétt viðbrögð eftir styrkleika: http://ust.is/einstaklingar/loftgaedi/so2#Tab1

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert