Strætó bregður á leik í Samgönguvikunni sem hófst í dag. Farið verður af stað með leikinn Ferðasátt, sem snýst um að hvíla einkabílinn og taka Strætó, ganga, hlaupa eða hjóla til og frá vinnu eða skóla í að minnsta kosti eina viku.
Hægt er að skrá sig til leiks á Facebook-síðu Strætó með því að setja nafn sitt á viljayfirlýsingu um að nýta umhverfisvænan samgöngumáta eins mikið og hægt er í Samgönguvikunni.
Í lok vikunnar verður fjöldi vinninga dreginn út, að því er segir í tilkynningu frá Strætó.