Áminntur fyrir að fara ekki eftir reglum

mbl.is/Rósa Braga

Landhelgisgæslan áminnti í vikunni skipstjóra erlends flutningaskips fyrir að fara ekki eftir reglum um aðskildar siglingaleiðir fyrir Reykjanes. Skipið, sem er yfir 5.000 tonn, var aðeins heimilt að sigla ytri siglingaleið fyrir Reykjanes en LHG áminnti skipstjórann þegar skipið stefndi innri leiðina.

Fram kemur á vef Landhelgisgæslunnar, að Gæslunni hefði borist tilkynning frá erlendu flutningaskipi á mánudag sem var að leggja úr höfn frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur.

Skipinu voru veittar þær upplýsingar að vegna stærðar skipsins, sem var yfir 5.000 tonn, var því aðeins heimilt að sigla ytri siglingaleið fyrir Reykjanes. Vegna tungumálaörðugleika voru skipinu auk þess sendar reglur og upplýsingar rafrænt um aðskildar siglingaleiðir, að því er segir á vef Gæslunnar.

Tveimur klukkustundum síðar hafði Landhelgisgæslan samband við skipið þar sem það sást í ferilvöktunarkerfum stefna innri siglingaleiðina fyrir Reykjanes. Vakthafandi stýrimaður kannaðist ekki við upplýsingar sem voru gefnar og sendar skipinu fyrr um daginn. Skipið var áminnt fyrir að vera ekki með uppfærð siglingakort og hafa ekki kynnt sér siglingaleiðir innan svæðisins.

Tekið er fram á vef Gæslunnar, að reglur um aðskildar siglingaleiðir miði að því að auka siglingaöryggi og vernda efnahagslega og líffræðilega mikilvægar slóðir á hafsvæðinu. Það sé gert með því að beina skipaumferð á afmarkaðar öruggar siglingaleiðir og takmarka umferð skipa yfir þeim stærðarmörkum sem tiltekin eru í reglugerðinni og skipa sem flytja hættulegan og mengandi farm um viðkvæmt hafsvæði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert