Fjörutíu jarðskjálftar frá miðnætti

Fjörutíu jarðskjálftar hafa mælst frá miðnætti á svæðinu við norðanverðan Vatnajökul. Þar af fimm í Bárðarbungu, um 15 í norðanverðum ganginum og um 20 við Herðubreið og Herðubreiðartögl samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Allir innan við tvö stig að stærð.

Stærstu skjálftarnir frá í gærdag urðu í gærkvöld. Þeir stærstu urðu klukkan 20:20 (4,8 að stærð) og klukkan 21:34 (5,4 að stærð).

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert