Karl Axelsson, einn eiganda að lögmannsstofunnar LEX, hefur verið settur dómari við Hæstarétt Íslands. Setning Karls er frá 16. október næstkomandi til 15. apríl 2015.
Þetta kemur fram á vefsvæði Lex. Þar segir einnig að Karl hafi um árabil verið einn eftirsóttasti lögmaður landsins og flutt fjölda stefnumarkandi dómsmála, einkum á sviði eignar- fasteigna- og auðlindaréttar.
Þá hefur Karl kennt eignarrétt við lagadeild Háskóla Íslands, frá árinu 1992.