Norðmaður vann 94 milljónir

Norðmaður fékk rúmar 94 milljónir í sinn hlut er hann hreppti fyrsta vinning í Víkingalottói kvöldsins. Vinningstölur kvöldsins voru 8, 9, 13, 20, 39, 41. Bónustölurnar voru 2 og 23 og ofurtalan 29. 

Tveir voru með fjórar jókertölur réttar og hlaut hvor þeirra 100 þúsund krónur. Vinningshafarnir tveir voru með miða í áskrift.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert