Kæruferli óhjákvæmilegt

Veglínur sem eru til skoðunar.
Veglínur sem eru til skoðunar. mynd/Vegagerðin

Vegagerðin hefur ákveðið að kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála ákvörðun Skipulagsstofnunar þess efnis að hafna því að ný veglína um Teigsskóg fari í mat á umhverfisáhrifum. Vegagerðin segir þetta nauðsynlegt til að fá niðurstöðu um það hvort um nýja framkvæmd er að ræða eða ekki.

Vegagerðin hafnar þeirri niðurstöðu Skipulagsstofnunar að þetta sé sama framkvæmd og telur að ný veglína sé það ólík fyrri línu og skerði Teigsskóg mun minna en fyrri áform þannig að um nýja framkvæmd sé að ræða.

Verði niðurstaðan sú að ekki sé um nýja framkvæmd að ræða þá mun reyna á endurupptöku á forsendum umhverfismatsins frá 2006. Ef ekki yrði kært núna myndi kærufresturinn þar að auki renna út, 10. október n.k. og sú leið þá ófær, segir í frétt á vef Vegagerðarinnar.

Tekið er fram að kærufresturinn sé stuttur og mun Vegagerðin flýta kæru og málsmeðferð svo sem kostur er.

Bent er á, að ef úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála tekur undir sjónarmið Skipulagsstofnunar skapast grundvöllur til endurupptöku.

„Vegna umræðu um endurupptöku á úrskurði Skipulagsstofnunar frá árinu 2006 þar sem leiðinni um Teigsskóg var hafnað er rétt að benda á að það á einungis við ef að um sömu framkvæmd er að ræða en Vegagerðin lítur svo á að hin nýja veglína Þ-H þar sem hún liggur um Teigsskóg sé ný framkvæmd enda ný veglína og verktilhögun ólík fyrri leið að því marki að rask á skógi verður mun minna. En um það hefur málið frá upphafi snúist, þ.e.a.s. rask á Teigsskógi.

Ekki er ljóst hvort hægt er að byggja málsmeðferð á því að framkvæmdin sé sú sama en samt sem áður hafi grundvallarforsendur hennar breyst, en það er skilyrði endurupptöku. Það er mikilvægt að eyða allri lagalegri óvissu um það hvernig eigi að fara með málið og það er úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála sem hefur það hlutverk að leysa úr álitaefninu.

Þar sem það er álit Vegagerðarinnar að um nýja framkvæmd sé að ræða er nýtt matsferli samkvæmt gildandi lögum rétta leiðin og í samræmi við núgildandi lög. Vegagerðin telur sér skylt að fylgja ákvæðum laga í þessu efni,“ segir í frétta á vef Vegagerðarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert