Með hálft kíló af kannabis í varadekkinu

Fíkniefnahundurinn Nökkvi og þjálfari hans fundu fíkniefnin.
Fíkniefnahundurinn Nökkvi og þjálfari hans fundu fíkniefnin. mynd/Lögreglan í Borgarnesi

Lögreglan í Borgarfirði og Dölum hafði afskipti af ökumanni í gærkvöld sem ók of hratt í gagnum umdæmið. Fljótlega vaknaði grunur um að hann væri undir áhrifum fíkniefna og var hann því handtekinn og færður á lögreglustöðina í Borgarnesi.

Við leit í bílnum fundu fíkniefnahundurinn Nökkvi og þjálfari hans rúmlega hálft kíló af kannabis sem falið hafði verið inni í varadekki bílsins. Einnig fannst neysluskammtur af amfetamíni í bílnum.

Í skýrslutöku viðurkenndi ökumaðurinn að hafa verið að flytja fíkniefni frá Reykjavík norður í land.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert