Bitnar helst á þeim sem minnst mega sín

mbl.is/Kristinn

Stjórn Kennarasambands Íslands mótmælir harðlega áformum stjórnvalda að hækka lægra þrep virðisaukaskatts úr 7% í 12%. KÍ segir að það muni óhjákvæmilega leiða til að verð á mat og öðrum nauðsynjavörum muni hækka umtalsvert. Það bitni helst á þeim sem minnst mega sín í íslensku samfélagi.

Þetta kemur fram í ályktun sem stjórn KÍ hefur sent frá sér.

„Hækkun á virðisaukaskatti á bækur fer illa saman við yfirlýsta stefnu stjórnvalda um að bæta lestrarkunnáttu ungs fólks. Breytingin mun leiða til verðhækkunar á bókum sem mun án efa leiða til þess að framboð af íslenskum bókum dregst saman. Breytingarnar munu einnig auka útgjöld framhaldsskólanema til bókakaupa, sem voru allt of há fyrir,“ segir í ályktuninni.

Þá mótmæli stjórn KÍ ennfremur þeim áformum stjórnvalda að greiða ekkert í sjóði VIRK endurhæfingar á ári komanda eins og þó sé kveðið á um í lögum frá árinu 2012. Þar með sé framtíðarstarf VIRK í hættu og um leið sé endurhæfing fjölda skjólstæðinga sjóðsins sett í uppnám. Stjórnvöld eru hvött til að standa við gerða samninga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert