Hluta Réttarholtsvegar lokað vegna slyss

Mynd sem vegfarandi tók á slysstað fyrr í dag.
Mynd sem vegfarandi tók á slysstað fyrr í dag. mbl.is/Hersir

Réttarholtsvegi að Bústaðavegi hefur nú verið lokað vegna umferðarslyss. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu varð umferðarslys á gatnamótunum, en lögreglan segir að fólkið hafi hlotið minniháttar meiðsl. 

Lögreglan telur að gatnamótin verði opnuð að nýju innan fimmtán mínútna.

Uppfært 15:04

Að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu voru tveir fluttir á slysadeild til aðhlynningar. Upplýsingar um meiðsl fólksins liggja ekki fyrir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert