Í vímu á ólöglegu bifhjóli

mbl.is/Eggert

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í vikunni för tæplega þrítugs manns sem var á ferðinni á léttu bifhjóli, sem var án skráningarmerkja. Maðurinn ók sviptur ökuréttindum og var að auki undir áhrifum fíkniefna við aksturinn. Sýnatökur á lögreglustöð staðfestu neyslu hans á kannabis og amfetamíni.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Annar réttindalaus ökumaður var einnig stöðvaður þar sem hann ók á móti umferðarstefnu í gegnum hringtorg. Bifreiðin sem hann ók var óskoðuð og ótryggð og voru skráningarmerki fjarlægð af henni, segir einnig í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert