Rætt um möguleika á sviði jarðvarma í Evrópu

Ragnheiður Elín Árnadóttir ásamt Gunther Oettinger.
Ragnheiður Elín Árnadóttir ásamt Gunther Oettinger.

Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, tók í dag þátt í hringborðsumræðum í Brussel um möguleika á sviði jarðvarma í Evrópu. Á fundinum var rætt um leiðir til að auka hlut jarðvarmanýtingar innan ESB, fyrst og fremst til húshitunar en einnig til annarra nota.

Fram kemur í tilkynningu að, ljóst sé að víða í Evrópu sé mikill jarðhiti og miklir möguleikar til að nýta hann á kostnað annarra orkugjafa sem ekki eru endurnýjanlegir. Nýting jarðhita er í fullu samræmi við orku- og umhverfisstefnu ESB.

Fundurinn var skipulagður af íslenskum stjórnvöldum og Gunther Oettinger, framkvæmdastjóra orkumála innan ESB. Fulltrúar frá fjölda íslenskra fyrirtækja á þessu sviði tóku þátt í fundinum, auk sérfræðinga víða að úr Evrópu. 

Ráðherra átti einnig hádegisverðarfund með Oettinger þar sem að orkumál í Evrópu voru rædd. Að endingu fundaði ráðherra með forseta Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) þar sem farið var almennt yfir stöðu einstakra mála á vettvangi ráðuneytisins og ESA.

Nánar á vef atvinnuvegaráðuneytisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert