Réttarholtsvegur opnaður að nýju

Sigurður Bogi Sævarsson

Búið er að opna hluta Réttarholtsvegar sem var lokað vegna umferðarslyss fyrr í dag.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu þurfti að loka gatnamótum Réttarholtsvegar og Bústaðarvegar vegna umferðaróhapps. Búið er að opna gatnamótin að nýju.

Að sögn slökkviliðsins á höfuðborg­ar­svæðinu voru tveir flutt­ir á slysa­deild til aðhlynn­ing­ar. Upp­lýs­ing­ar um meiðsl fólks­ins liggja ekki fyr­ir.

„Hluta Rétt­ar­holts­veg­ar lokað vegna slyss“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert