Þrjár bifreiðar lentu í árekstri

mbl.is/Hjörtur

Þriggja bifreiða árekstur varð á gatnamótum Miklubrautar og Háaleitisbrautar í Reykjavík upp úr klukkan hálf eitt í dag. Tvær sjúkrabifreiðar eru á staðnum og sú þriðja á leiðinni.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins er ekki talið að meiðsl þeirra sem í bifreiðunum voru séu alvarleg en fólkið verði eftir sem áður flutt á sjúkrahús til skoðunar. Ekki liggja fyrir upplýsingar um tildrög slyssins.

Nokkrar tafir urðu á umferð en ekki alvarlegar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert