Enginn hlaut fyrsta vinning

Potturinn verður fjórfaldur næsta laugardag.
Potturinn verður fjórfaldur næsta laugardag.

Enginn hlaut fyrsta vinning í lottói kvöldins en potturinn var þrefaldur. Þrír skiptu með sér bónusvinningnum og fær hver um sig rúmlega 114 þúsund í vinning. Einn miðinn var keyptur í Samkaup Úrvali á Selfossi, annar í Olís við Langatanga í Mosfellsbæ og sá þriðji í N1 við Borgartún í Reykjavík. 

Jókerinn gaf vel af sér en sex miðaeigendur voru með fjórar réttar tölur í réttri röð og fær hver um sig 100 þúsund kall í vinning. 

Miðarnir voru keyptir á eftirtöldum stöðum; Söluturninum Smára við Dalveg í Kópavogi, Snælandi í Mosfellsbæ, N1 við Gagnveg í Reykjavík, N1 við Ártúnshöfða í Reykjavík og tveir miðar voru keyptir á lotto.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert