Umferðaróhapp var í Reykjavík í nótt þegar varningur féll úr flutningabifreið á Miklubraut, skammt frá Ártúnsbrekku. Var bíllinn með fullan farm af fiski í körum og dreifðist fiskurinn um götuna. Lögreglan var kölluð á svæðið og umferðin stöðvaðist um tíma.