Kepptu í akstri rúta og trukka

Íslandsmeistarakeppni í Ökuleikni á rútum og trukkum fór fram í …
Íslandsmeistarakeppni í Ökuleikni á rútum og trukkum fór fram í dag. Ljósmynd/Brautin

Í dag, laugardaginn 20. september, fór fram Íslandsmeistarakeppni í Ökuleikni á rútum og trukkum. Keppnin var haldin á svæði Ökuskóla 3 við Borgartún í Reykjavík en Brautin – bindindisfélag ökumanna stóð fyrir keppninni. 

Til leiks voru skráðir fimmtán keppendur. Sumir höfðu keppt áður en aðrir voru nýir. Eftir að hafa svarað umferðarspurningum byrjuðu keppendur á að aka í gegnum tvö þrautaplön. Á öðru planinu var ekið á stórri rútu en á lítilli rútu á hinu planinu. Rúturnar komu báðar frá SBA Norðurleið. Eftir að hafa ekið í gegn á rútum var skipt yfir á trukk frá Líflandi og sendibíl frá Öskju.

Tíminn var tekinn og fyrir hverja villu sem keppendur gerðu bættust 20 sekúndur við tímann. Þá bættust 5 sekúndur við tímann fyrir hverja villu í spurningum.

Keppendur tóku þátt sem einstaklingar en þeim gafst einnig kostur á að mynda lið. Verðlaun voru veitt fyrri efstu þrjú sætin í einstaklingskeppnum og efsta sæti í liðakeppnum. Eimskip gaf verðlaun fyrir trukkakeppnina og Askja fyrir rútukeppnina. 

Á morgun kl. 13 verður svo keppt í Ökuleikni á fólksbílum en þá er það Hekla sem lánar VW UP, VW Polo og VW Golf.

<b>Úrslit</b> <b>Rútur</b>

1. Kristján Jóhann Bjarnason 491 sek

2. Atli Grímur Ásmundsson 501 sek

3. Smári Baldursson 505 sek

Efstir í liðakeppni urðu Uppgjafarútubílstjórar en það lið var skipað þeim Sigurði Sigurbjörnssyni og Björgvini Gunnarssyni. 

<b>Trukkar</b>

1. Björgvin Gunnarsson 322 sek

2. Óskar Kristófer Leifsson 371 sek

3. Ævar Sigmar Hjartarsson 376 sek

Uppgjafarútubílstjórarnir urðu sömuleiðis efstir í liðakeppni á trukkum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert