Með fíkniefnaframleiðslu og snák

mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu  þurfti í gær að hafa afskipti af pari í Kópavogi en þau eru grunuð um vörslu og framleiðslu fíkniefna. Fór lögreglan á heimili rétt fyrir klukkan 19 í gærkvöldi. 

Á heimilinu var ekki aðeins fíkniefnaframleiðsla heldur fannst einnig snákur og var hann fjarlægður og farið með hann í eyðingu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert