Slagveður og hviður á morgun

Reikna má með slagveðursrigningu og hviðum 30-35 m/s.
Reikna má með slagveðursrigningu og hviðum 30-35 m/s. mbl.is/Styrmir Kári

Á undan skilum fremur djúprar lægðar hvessir af SA á morgun, einkum vestanlands.  Reikna má með slagveðursrigningu og hviðum 30-35 m/s frá því skömmu fyrir kl. 12 og fram yfir miðjan dag, s.s. á utanverðu Kjalarnesi, undir Hafnarfjalli og staðbundið norðantil á Snæfellsnesi.

Vegna vinnu í Múlagöngum má búast við umferðartöfum í kvöld, laugardagskvöld, frá kl. 18 til 24.

Unnið er við að koma fyrir stálræsi/undirgöngum undir Hringveg á Hellisheiði á móts við gatnamótum inn á Gígahnúksveg. Umferðarhraði hefur verið tekinn niður í 50 km/klst í gegnum þetta svæði og er umferð hleypt um hjáleið. Áætlað er að þessu verki ljúki 4. október.

Almannavarnir hafa lokað  leiðum á hálendinu Norðausturlands, norðan Dyngjufjalla. Einnig nokkrum leiðum upp úr Bárðardal og við Grænavatn. Vegurinn vestan við Dettifoss er einnig lokaður að hluta. 

Vegna vinnu við brúna á Geitá á Langjökulsvegi (nr. 551) er gert ráð fyrir að brúin verði lokuð  til 25. september.

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert