Vatn komið á í Holtahverfi á Ísafirði

Ísafjörður
Ísafjörður mbl.is/Kristinn

Vatn er nú komið á í Holtahverfi á Ísafirði, eftir vatsleysi þar síðan í gær. Lögn fór í sundur þegar plægt var fyr­ir rör­um við þjóðveg­inn upp Tungu­dal, og var ekki hægt að gera við hana þar sem varahlut vantaði.

Samkvæmt Gísla H. Halldórssyni bæjarstjóra ítreka bæjaryfirvöld afsökunarbeiðni vegna þessara atvika. 

Frétt mbl.is: Vatnslaust í Holtahverfi á Ísafirði

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert