Ferðamaðurinn í Hoffellsdal fundinn

mbl.is/Ómar

Ferðamaðurinn sem villtist í Hoffellsdal í dag þegar hann var í göngu með konu sinni er nú fundinn samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu. 

Hinn erlendi ferðamaður villtist eftir að kona hans treysti sér ekki lengra og sneri við, en hann sjálfur hélt göngunni áfram. Síðar sendi hann konunni sinni sms þar sem hann sagðist vera týndur í þokunni. Björgunarfélag Hornafjarðar var kallað út um klukkan 19 og um klukkan 22 fannst hann en hann var þá staddur í vesturhlíðum Efstafellsgils og reyndist heill á húfi.

Sjá frétt mbl.is: Leita ferðamanns í Hoffellsdal

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert